Um vefinn
Hvað er jaedanei.is?
jaedanei.is er sjálfstæð upplýsingaveita hönnuð af hugbúnaðarhúsinu Reon um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026 um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.
Markmið vefsins er að auðvelda fólki að kynna sér málið út frá aðgengilegum heimildum. Spjallmennið svarar spurningum byggt á gagnasafni með frumheimildum og efni frá ólíkum sjónarhornum í umræðunni.
Vefurinn tekur enga afstöðu til þess hvort kjósendur eigi að segja já eða nei. Markmiðið er að hjálpa notendum að skoða helstu rök, skilja samhengi þeirra og vísa áfram í frumheimildir þegar við á.
Heimildir spjallmennisins
Spjallmennið leitar í gagnasafni með 117 skjölum sem skiptast í þrjá meginflokka:
Frumheimildir
- Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ um stöðu aðildarviðræðna Íslands við ESB
- Þingsályktunartillaga 2026 um þjóðaratkvæðagreiðsluna
- Nefndarálit utanríkismálanefndar um aðildarumsókn Íslands
- Umsögn Feneyjanefndar Evrópuráðsins
- Umsögn Landskjörstjórnar
- Opinber gögn frá Stjórnarráðinu og ráðuneytum
- Alþjóðasamningar og stefnumótandi skjöl sem tengjast Evrópusambandinu
- Umsagnir og nefndarálit til utanríkismálanefndar Alþingis (Hagfræðistofnun HÍ 2026, Lagastofnun HÍ, Feneyjanefndin, Landskjörstjórn, ásamt meirihluta- og minnihlutaáliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar)
- Frumheimildir frá Evrópusambandinu — álit framkvæmdastjórnar ESB um umsókn Íslands (COM(2010) 62), reglugerð um sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna (1380/2013), fuglatilskipun ESB, ESB-sáttmáli um búferlaflutninga og hæli (Pact on Migration and Asylum 2024), Critical Raw Materials Act, og opinberar leiðbeiningar ESB um stækkun
Gögn sem endurspegla sjónarmið stuðningsmanna áframhaldandi viðræðna
- Efni frá Evrópuhreyfingunni
- Minnisblöð og upplýsingagögn um öryggis- og varnarmál, efnahagsmál, tollaumhverfi og mögulegar sérlausnir
- Opinber Q&A skjöl og upplýsingasíður stjórnvalda
- Umsagnir frá stuðningsmönnum aðildar til utanríkismálanefndar Alþingis (Evrópuhreyfingin, Ungir Evrópusinnar, Uppreisn — ungliðahreyfing Viðreisnar, BSRB, Þorvaldur Gylfason, Bjarni Már Magnússon, Jón Steindór Valdimarsson, utanríkisráðuneytið o.fl.)
Gögn sem endurspegla sjónarmið andstæðinga áframhaldandi viðræðna
- Efni frá Heimssýn
- Greinar, spurningar og svör og annað útgefið efni frá andstæðingum ESB-aðildar
- Efni frá Til vinstri við ESB
- Umsagnir frá andstæðingum aðildar til utanríkismálanefndar Alþingis (Heimssýn, Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Samtök fullveldissinna, Bændasamtök Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Frosti Sigurjónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Ögmundur Jónasson, Orkan Okkar, Stjórnarskárfélagið o.fl.)
Heimildasafnið er ekki fullkomið og verður uppfært eftir því sem ný gögn eða ábendingar berast.
Hvernig virkar þetta?
Spjallmennið byggir á tungumálalíkani frá OpenAI sem hefur aðgang að sérvöldu heimildasafni vefsins.
Þegar þú spyrð spurningar:
- 1. Spurningin er send ásamt fyrirmælum um hlutleysi og efnistakmörkun.
- 2. Kerfið leitar að viðeigandi heimildum í gagnasafninu.
- 3. Svar er samið út frá þeim heimildum sem finnast.
- 4. Ef spurning er utan efnis eða heimildir vantar reynir spjallmennið að benda notanda áfram frekar en að giska.
Spjallmennið reynir ekki að segja til um hvor afstaðan sé „rétt". Ef heimildir greinir á reynir það að lýsa helstu sjónarmiðum beggja megin og vísa í heimildir þegar við á.
Takmarkanir
Gervigreind getur gert mistök eða mistúlkað samhengi, sérstaklega í tæknilegum, lagalegum eða pólitískum álitaefnum.
Vefurinn er ekki opinber upplýsingaveita ríkisins og ætti ekki að vera notaður sem eina heimild við mikilvægar ákvarðanir.
Notendur eru hvattir til að lesa frumheimildir sjálfir þegar mögulegt er.
Hagsmunir og fjármögnun
Vefurinn er ekki rekinn af stjórnmálaflokki, hagsmunasamtökum eða opinberum aðilum.
Verkefnið er þróað og fjármagnað af Reon án utanaðkomandi styrkja eða samstarfsaðila.
Vefurinn er án auglýsinga og engin persónugreinanleg gögn eru seld eða nýtt í markaðssetningu.
Persónuvernd og gagnameðferð
Vefurinn notar ekki auglýsingakökur, Google Analytics eða sambærileg rakningarkerfi.
Aðeins er notuð privacy-friendly greiningarþjónusta (Plausible Analytics) sem safnar samanteknum heimsóknatölum án persónugreinanlegra upplýsinga.
Hvað er geymt?
- Spjallasaga geymist aðeins tímabundið í vafranum þínum meðan flipinn er opinn
- Tungumálsval er vistað í localStorage til að muna stillingar
- Þjónn vefsins geymir aðeins heildarfjölda fyrirspurna, ekki hver sendi þær
- IP-tölur geta verið notaðar tímabundið til að verjast spam-i en eru ekki vistaðar varanlega
Þriðju aðilar
- OpenAI vinnur úr fyrirspurnum spjallmennisins
- Netlify hýsir vefinn og backend-þjónustu
- Tally.so sér um tengiliðaform ef notandi sendir fyrirspurn
- Plausible Analytics safnar samanteknum heimsóknatölum án cookies eða persónugagna
Réttindi notenda
Þar sem vefurinn safnar ekki persónugreinanlegum gögnum á eigin þjóna eru engin notendaprófílsgögn til staðar til að afhenda eða eyða.
Þú getur hreinsað spjallasögu úr vafranum hvenær sem er með því að loka flipanum eða nota „Hreinsa samtal".
Ef óskað er eftir eyðingu gagna hjá þriðja aðila þarf að hafa samband við viðkomandi þjónustuaðila.
Hafa samband
Hefur þú spurningu sem spjallmennið getur ekki svarað? Viltu benda á villu eða heimild sem vantar?
Hafðu samband í gegnum tengiliðaform vefsins
← Til baka á forsíðu